Best Fyrir á Jútúbb.

Hér u nokkrir hlekkir á Best Fyrir túbbinu

http://www.youtube.com/watch?v=uKOsDEe-ujo Hér er myndband við Lagið Dagur í lífi.Tkið upp á æfingum fyrir tónleikana.

http://www.youtube.com/watch?v=fT-ZfKLYuac  Hér er myndband við lagið Ísland í dag.Myndir frá upptökum plötunar.

http://www.youtube.com/watch?v=N1VosuvzJpA Af tónleikum Best Fyrir í Ungó á Dalvík í apríl 2009. Á plötunni ,,Á augnabliki...lokar þú augunum". Lagið er Ísland í dag.

http://www.youtube.com/watch?v=EucSbJS5-O4 Frá tónleikum Best Fyrir í Ungó á Dalvík í apríl 2009 í tilefni útgáfu plötunnar ,,Á augnabliki...lokar þú augunum". Binni söngur, Elmar kassagítar, Gummi rafgítar, Beggi bassi, Sverrir trommur. Lagið er Gleðipillan

http://www.youtube.com/watch?v=4oBb3wEMjEE Frá útgáfutónleikum Best Fyrir í Ungó á Dalvík í apríl 2009. Á plötunni ,,Á augnabliki...lokar þú augunum". Þar sungið af Rúnari Þór. Lagið er Vaka Vaka.

http://www.youtube.com/watch?v=nXgdzje_iMI Frá útgáfutónleikum Best Fyrir í Ungó á Dalvík í apríl 2009. Af plötunni ,,Á augnabliki...lokar þú augunum". Lagið er Aumur á mér

strakarnir(2)vol-2

 


Best Fyrir

Best Fyrir í stúdíó fyrir jól.Eru þetta ekki frábærar fréttir ?

Rennt verður í nokkur tökulög og ein fjögur ný og svo jafnvel jólalag.Platan mun svo fást gefins frá okkur strákunum.En ég minni á að til eru nokkur eintök af metnaðarfullu verki okkar sem kom út í upphafi þessa árs, hún er hér..vol-2 og svo gamla hér...líf


BF- Live á Dalvík

fiski 2    Best Fyrir á fiskidag.

Rás 2

Frábær grein hjá Bigga í Maus í mogganum í dag og segir ansi margt.Mæli með að þú lesir hana en þar er komið inná t.d hvort ekki væri nú hægt að veita okkur eigendunum rétt til að fá að tjá hug okkar um dagskrágerðarfólkið sem þar starfar.

Jájá ég viðurkenni að ég er með horn í síðu popplandsins t.d,er ekki að skilja dágskrárgerðina þar.Aftur á móti eru fullt af hæfum aðilum sem ég mundi vilja sjá koma þar inn og í raun fríska aðeins upp á batteríið,einn af mínum uppáhalds er Snorri Sturlu,hann einhvern vegin nær mér og hefur eitthvað að segja.Það vantar líka meiri festu í lagavalið,held að það sé, eitthvað búið að skerða frelsi dagskrárgerðamanna og komnir playlistar og þá verður þetta eitthvað svo glatað þegar frelsið blandast við eitthvað sem þarf að spila.

Svo er það auglýsingarnar maður lifandi, þær eru að verða jafn fyrirferðamiklar og á Bylgjunni !!!

Allavega ángður með Bigga í maus.

 


Frábær fiskidagur

Best Fyrir naut sín heldur betur á Dalvík um helgina.Fyrst var það stóra sviðið þar sem bandið lék fimm lög.Hápunktur var þegar við spiluðum Ég þrái að lifa og greinilegt að margir kannast við.

Síðan var það Hemmi Gunn,þar sem við spjölluðum og spiluðum,m.a Ég þrái að lifa.Það má hlusta á okkur hérna http://bylgjan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=47151

Hvað verður næst hjá Best Fyrir kemur í ljós á næstu dögum en þetta síðasta ár hefur verið annasamt og skemmtilegt.Plata og mikið að spila.

Setjum inn myndir bráðklega og meira til.


Aftur í tíma..

Ég sett iþessa færslu inn á bloggasíðu sem ég hélt úti,var reyndar nokk öflugur á bloggi frá2003-7.

www.binnid.bloggar.is

Engin athugasemd

Til Baka Í Tíma....Brynjar Davíðsson

Er að upplifa svolítið sérstakt þetta kvöldið.Ekkert spes að gerast og því eins og oft áður í slíkum aðstæðum fer maður inn í herbergi, sem hýsir tölvu og tónlist,setur disk í og blastar headfóna.Fyrst leitar maður að einhverju spennandi og það getur verið svo margt.

 

Allt í einu rek ég augun í diskinn sem ég og Elmar gáfum út 2003 og jú þetta kvöldið ákvað ég að setja hann í.Komin tími til að rifja upp þetta ævintýri sem þessir 6-7 mánuðir voru.Þrátt fyrir að maður hafi nú tekið rokkaralífið, helst til of bókstaflega á stundum.

 

Það sem kemur mér mest á óvart er hvað þetta er sterkt,allavega núna þetta ágæta kvöld.Ég rifja upp kvöldin sem við lögðum í þetta ég Elmar og Atli og það voru nokkuð mörg kvöld.Kannski sándið sé nú ekki pottþétt en ég skynja leikgleði all svaðalega þarna.Lögin eru mörg hver bara fínustu smíðar og textarnir,ja hvað skal segja…..Þrungnir.

 

Í plötudómi sem hinn geðþekki Arnar Eggert setti í moggan,að ég held eftir að Elmar var búin að hóta honum öllu íllu,segir meðal annars….

 Textarnir eru þá verðugir athugunar. Það er orðið allt of sjaldgæft að íslenskar dægurlagasveitir bjóði upp á texta með einhverju innihaldi - í mesta lagi eru menn að stunda kersknislega orðaleiki. Best fyrir bjóða hins vegar upp á dimmúðlega texta sem fjalla um sorgbundin málefni eins og geðsjúka vini, þunglyndi, vonlaus ástarsambönd, ástarsýki, horfin æskuár, brostnar vonir o.s.frv., allir þeirra haglega saman settir. Góðu heilli fylgja textarnir með og þeim fylgja skýringar sem ramma umfjöllunarefnin skemmtilega inn. Í myrkustu köflunum er næstum eins og hemjulaus biturð búi viðkomandi skáldum en textar eins og "Mig dreymdi þennan draum" og "Brosið" vísa þó sem betur fer veginn til heilnæmrar bjartsýni og raunsæis” 

Já þetta var um margt skemmtilegur tími þó að eftirleikurinn hafi kannski ekki verið fyrirfram skrifaður.Það er komin tími á nýja plötu,vonandi við þremeningar skellum í eina í vetur.Með engum öðrum vildi ég eyða tíma í svona verkefni heldur en þeim snillingum Elmari og Atla,nema vera skildi að maður gerðist sóló..ég er til.Ég leyfi Arnari Eggert að eiga síðasta orðið um leið og ég klára að hlusta á diskinn minn,sem mér hreinlega er farið að þykja vænt um…..

 Skemmst er frá því að segja að þetta er um margt glúrin plata og sker sig að ýmsu leyti frá venjubundnu (og oft þreytandi) popprokki. Tónlistin er melódískt rokk, nýbylgjuskotið og einhverra hluta vegna dettur mér í hug New Jersey-sveitin ágæta The Smithereens. Líklega vegna þess að stundum gára nettar REM/háskólarokksöldur undir lögunum auk þess sem söngurinn er tilfinningaríkur og opinn, grófur og svona hæfilega lagviss. Þetta allt gæðir sönginn sjarma þó í einstaka tilfellum sé hann fullstirður. Í lögum eins og "Fram á veg" og mig "Dreymdi þennan draum" er styrkur Best fyrir greinilegastur. Metnaðarfullar lagasmíðar þar sem kaflaskiptingar eru þægilega ófyrirsjáanlegar, viðlög rödduð og þessi lög sitja ósjálfrátt eftir í huganum þegar þeim sleppir. "Möttu augun" og "Gleðipillan" eru í svipuðum farvegi; angistarfullar smíðar og kröftugar. “ 

Það er auðvelt að nálgast þetta á www.tonlist.is ef menn hafa áhuga.

líf

 


ÞÓR - ka

Í tilefni leiksins í kvöld,kemur hér gömul lumma.Þórslagið 1995, í tilefni af frábæru gengi Þórsara í bikarkeppninni það árið.Þór fór með tvö lið í 8-liða úrslit það ár,sem hlýtur að vera einsdæmi og gaman að rifja upp !!

http://nemendur.khi.is/elmaeiri/Thorslagid_95.wma

ÁFRAM ÞÓR.


Fiskidagurinn 2009.

við verðum á sviði kl.12:45 kjh
Dagskrá
Fiskidagurinn mikli 2009 – Dagskráin á hátíðarsviði - Kynnir: Júlíus Júlíusson.

 

kl.11:00 -  Setning  -  Framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla

kl.11:05 -  Lag Fiskidagsins Mikla -  Matti Matt og Friðrik Ómar

kl.11:10 -  Séra Magnús G. Gunnarsson - Lítil Fiskidagsmessa

kl.11:20 -  Vigdís Diljá Óskarsdóttir og Karitas Hvönn

kl.11.30 -  Atli Rafn Kristinsson – 200 ára afmæli fiskifána Jörundar

kl.11.40 -  Atriði úr Rauðhettu – Leikhópurinn Lotta 
kl.11:50 -  Lag Fiskidagsins Mikla – Matti Matt og Eyþór Ingi

kl.11:55  Kvennakórinn Salka – Stjórnandi Margot Kiis 
kl.12:10 –  Íris og Snorri Hauksbörn snerta gesti með söng og spili

kl.12:25 –  Húsbændur og Hjú - Koma öllum í enn betra skap

kl.12:45 -  Best fyrir – …vertu klár fyrir framan sviðið

kl.13:05 – Árstíðir – Ferskir og flottir með gítarana. 
kl.13:25 -  Dyggð Heimir og Siggi Ingimarssynir.

kl 13:40 -  Dætur byggðalagsins – Fallegu stúlkurnar með fallegu raddirnar

kl.14:00 -  Heiðrun - Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar flytur ávarp

kl.14:10-   Ræðumaður dagsins - Þorsteinn Már Baldvinsson Samherja

kl.14:20 – Hljómsveitin Ofnæmir – Með sumarsmellinn 2009 
kl.14.35 -  Queen tribute – Magni Ásgeirsson og félagar

kl.14:50  - Dregið í Fjölskylduratleik Fiskidagsins mikla- Gönguverðlaun veitt

kl 15.05 -  Allt í lag fyrir Fiskidag - Húsasmiðjan veitir verðlaun í fegrunarátaki

kl.15:10 -  Karlakór Dalvíkur -  stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson

kl.15:30 -  Hvanndalsbræður  - Oft verið betri

kl.15:50 -  Pink coverband – Kata Árna, Thiago Trinsi, Stebbi Gunn og Ingvi Rafn.

kl 16:00 -  Lag Fiskidagsins Mikla - Matti Matt og Eyþór Ingi

kl.16:05 -  Fjölskylda og vinir Rúnars Júlíussonar – Minningardagskrá.

kl.16:40 – Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson og félagar

kl.17:00 -  Lag Fiskidagsins Mikla -  Matti Matt og Eyþór Ingi


Lokaorð Framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla. 


Næsta síða »

Um bloggið

Best Fyrir

Höfundur

Brynjar Davíðsson
Brynjar Davíðsson
Hljómsveitin Best Fyrir er norðlensk útgerð.Við vorum að gefa út plötu á íslensku auðvitað.Tékkaðu á því !!

Tónlistarspilari

Best fyrir - fram á veg
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • fiski 1
  • fiski 2
  • fiski 2
  • fiski 1
  • oo

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband